UMSÓKNAR- OG KAUPFERLI BÚSETURÉTTA Í NÝBYGGINGUM

Til að geta sótt um íbúð þarftu að vera félagsmaður í Búseta, hægt er að skrá sig í félagið hér GERAST FÉLAGI

Íbúðir í Árskógum eru nú auglýstar undir formerkjunum fyrstur kemur fyrstur fær óháð félagsnúmeri.

Íbúðir í nýbyggingum Búseta eru auglýstar á föstu verði.

SKREF 1 – Innskráning á „Minn Búseti“

  • Til að sækja um íbúð, eina eða fleiri, skráir þú þig inn á "minn búseti" með rafrænum skilríkum eða lykilorði.
  • Athugaðu að þú verður að hafa gilt netfang skráð í "Minn Búseti" og vera skuldlaus félagi til að sækja um.
  • Ef þú ert ekki félagsmaður þá getur þú skráð þig með því að smella á gerast félagi og skráð þig á örfáum mínútum.

SKREF 2 – Umsókn fyllt út

  • Þegar þú ert komin(n) inn á „minn Búseti“ getur þú skoðað þær íbúðir sem lausar eru og sótt um þá íbúð sem þér líst best á.

SKREF 3 – Úthlutun

  • Ef þú ert fyrst/ur til að sækja um tiltekna íbúð þá færðu sendan tölvupóst sem þú þarft að svara innan sólarhrings staðfesta úthlutun þína.
  • Ef þú hefur í hyggju að taka lán hjá Landsbankanum þarft þú að tilkynna það daginn eftir úthlutun á netfangið buseti@buseti.is svo hægt sé að koma því ferli í gang.

SKREF 4 – Bráðabirgðasamningur og greiðsla búseturéttar

  • Ganga þarf frá bráðabirgðasamningi vegna kaupa á búseturétti innan 10 virkra daga frá úthlutun um leið greiðir þú kr. 375.000.- inn á búseturéttinn og kostnað vegna kaupanna kr. 140.000.- Greiðsluáætlun á búseturéttinum er sett inn í samninginn.
  • Hægt er að greiða búseturéttinn að fullu strax. Einnig má dreifa 80% af verðinu jafnt á byggingartímann með mánaðarlegum greiðslum og greiða svo 20% a.m.k. 14 dögum fyrir afhendingu. Hægt er að sækja um lán hjá Landsbankanum fyrir allt að 50% af virði búseturéttarins. Sjá nánar um lánmöguleika hér.
  • Búseturéttur þarf að vera greiddur að fullu 14 dögum áður en flutt er inn í íbúð. Ekki er tekið við peningum en posavél er á skrifstofunni. Þú bókar tíma í síma 556 1000 til að ganga frá samningi, hann tekur u.þ.b. 30 mínútur, nema ef þú ert að selja annan búseturétt á sama tíma.
  • Þegar farið er á milli íbúða gengur alla jafnan megnið af eldri búseturétti upp í þann nýja. Íbúi verður að vera í skilum með búsetugjöldin. Landsbankalán getur færst á milli íbúða. Hvert tilfelli er þó skoðað fyrir sig þegar að samningagerð kemur.
  • Ef hjón eða sambúðarfólk ætlar að vera skráð saman á samninginn þurfa báðir aðilar að vera félagsmenn, hægt er að ganga frá félagsaðild í gegnum heimasíðuna eða á skrifstofu félagsins, árgjaldið er kr. 5.500.-

SKREF 5 – Afhending íbúðar

  • Búsetugjaldið er alltaf greitt fyrirfram og þarf að vera greitt þremur dögum fyrir afhendingu lykla, það verður innheimt með kröfu í heimabanka. Lyklar eru afhentir í nýju íbúðinni.
  • Athugið að réttur til vaxtabóta fylgir búsetaíbúðum með almennum lánum. Tekjur og eignir búseturéttarhafa hafa áhrif á upphæð bótanna, sem og vaxtagjöldin sem greidd eru inni í búsetugjaldinu. Ekki er hægt að fá húsaleigubætur vegna íbúða í Árskógum.
  • Skrifstofan sér um að láta þinglýsa búsetusamningunum.
  • Athugið að búsetugjöldin taka mið af áætlun sem mun leiðréttast þegar raungjöld falla til og komið er endanlegt fasteigna- og brunabótamat á eignirnar.